Reykjavíkurflugvöllur -Neyðarbrautin

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Reykjavíkurflugvöllur -Neyðarbrautin

Kaupa Í körfu

„Við horfum til næsta vetrar með hryllingi,“ segir Þorkell Á. Jóhannsson, flugstjóri hjá Mýflugi, sem annast sjúkraflugið í landinu. Veturinn er eins og gefur að skilja erfiðasti tíminn í sjúkrafluginu og lítið má út af bregða þegar koma þarf bráðveikum sjúklingum á Landspítalann. Isavia lokaði flugbraut 06/24 á Reykjavíkurflugvelli, neyðarbrautinni svokölluðu, um miðjan júlí. Um þessa braut hefur verið hart deilt undanfarin misseri. Isavia hefur breytt merkingum flugbrautarinnar og hefur hún verið nýtt sem akbraut að hluta og sem stæði fyrir flugför sem hafa hér tímabundna viðkomu. Í gær, þegar ljósmyndari átti leið um völlinn, var hins vegar engin vél á brautinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar