Samtök atvinnulífsins

Sverrir Vilhelmsson

Samtök atvinnulífsins

Kaupa Í körfu

Ársfundi Samtaka atvinnulífsins var meðal annars fjallað um framleiðni í atvinnulífinu.Davíð Oddsson sagði á ársfundi Samtaka atvinnulífsins grundvallaratriði að auka framleiðni í atvinnulífinu því þegar til lengri tíma væri litið réðust lífskjörin fyrst og fremst af framleiðni. Finnur Geirsson, formaður SA, sagði að framleiðni hefði aukist mikið 1996-97, en hún hefði staðið í stað síðustu tvö árin. Þetta væri íhugunarefni í ljósi þess að nýgerðir kjarasamningar byggðust á meðalframleiðniaukningu.Myndatexti: Meðal þeirra sem sátu fund Samtaka atvinnulífsins voru f.v. Barði Friðriksson, Sólon Sigurðsson, Einar Benediktsson, Sigurgeir Þorgeirsson, Birgir Ísleifur Gunnarsson og Jóhannes Nordal.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar