Saltsýra, slökkvilið, hreinsistarf, eiturefni

Ófeigur

Saltsýra, slökkvilið, hreinsistarf, eiturefni

Kaupa Í körfu

Gat kom á brúsa sem innihélt saltsýru með þeim afleiðingum að sýran lak niður á Hverfisgötu í gærmorgun. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað á svæðið og lauk fljótlega við það að hreinsa upp eiturefnið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu girti svæðið af á meðan slökkviliðið hreinsaði það. Samkvæmt upplýsingum frá Heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík var saltsýran geymd á hjólaverkstæði á Hverfisgötunni. Gat kom á brúsann og sýran lak út. Eigandi saltsýrunnar hringdi á slökkviliðið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar