Skarpar útlínur höfuðborgarinnar og mengunarský í sólarlaginu

RAX

Skarpar útlínur höfuðborgarinnar og mengunarský í sólarlaginu

Kaupa Í körfu

Síðdegis er fallegt að horfa af Kjalarnesinu til Reykjavíkur og útlínur landslags og bygginga verða sérstaklega skarpar í sólarlaginu. Úr fjarskanum sést líka vel hvernig svifryksmengun liggur yfir borginni, það er gráa muskan sem hér sést bera við brúnir Reykjanesfjallanna. Helgast þetta af því að þegar kalt er í veðri, eins og verið hefur að undanförnu, situr lag mengunar eftir í lægri lögum andrúmsloftsins í stað þess að leita ofar og brotna þar upp. Vel hefur viðrað sunnanlands síðustu daga og hiti verið ná- lægt frostmarki. Nú er hins vegar að snúast til suðlægrar áttar og verður snjókomu eða slyddu vart sunnanlands og vestan í dag. Norðanlands og austan verður þurrt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar