Li Peng og Íslendingar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Li Peng og Íslendingar

Kaupa Í körfu

Óvænt heimsókn á heimili í Gyðufelli Opinberri heimsókn Li Pengs, forseta kínverska þingsins, lýkur í morgunsárið í dag, en hann hefur dvalið hér á landi síðan á laugardag. Þingforsetinn kom víða við í Íslandsheimsókn sinni, átti meðal annars fund með forseta Íslands á Bessastöðum og forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum. Óvæntust var þó heimsókn Pengs og eiginkonu hans á heimili í Gyðufelli í Reykjavík á sunnudagsmorgun. Heiðar M. Guðnason, starfsmaður í prentsmiðju Morgunblaðsins og fjölskylda hans, tók á móti Li Peng og eiginkonu hans á heimili sínu í þriggja herbergja íbúð í Gyðufelli 8. Myndatexti: Zhu Lin, eiginkona Li Pengs, mátar hálsfesti á Álfheiði Björk, tveggja ára dóttur þeirra Heiðars M. Guðnasonar og Þórdísar Bjarnleifsdóttur í Gyðufelli 8. Li Peng situr við hlið Magnúsar Más, fjögurra ára

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar