Símamótið
Kaupa Í körfu
Ég er að fara á Austurríkis- leikinn, það verður mjög skemmtilegt,“ segir Lilja Björk Gunnarsdóttir, hægri kantmaður í liði Aftureld- ingar, glaðbeitt, en liði hennar hafði gengið afar vel á Síma- mótinu. Beðin að spá um gengi íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumótinu í sumar segir Lilja að hún hafi mikla trú á liðinu og telur að það geti náð langt. „Ég ætla að fylgjast með öllum leikjum hjá liðinu og ég held að þær geti náð þriðja sætinu.“ Símamótið í Kópavogi var hald- ið með pomp og prakt um helgina. Þetta var í 32. sinn sem mótið er haldið en tæplega 2.000 stelpur hvaðanæva af landinu tóku þátt í mótinu í ár. Mikill fjöldi fólks mætti í Kópa- vog og fylgdist með mótinu sem haldið er fyrir 5., 6. og 7. flokk kvenna og er stærsta knatt- spyrnumót landsins. Ríflega 300 lið frá 38 félögum spiluðu sam- tals um 1.200 leiki á mótinu og fóru þeir allir fram á félags- svæði Breiðabliks, úti og inni í Fífunni. Þegar Morgunblaðið bar að garði í gærmorgun og spurði stelpurnar og mótsgesti um Evrópumótið í Hollandi stóð ekki á svörum. Flestir voru afar áhugasamir og spáðu stelpunum í landsliðinu góðu gengi en fyrsti leikur liðsins er á morgun gegn firnasterku liði Frakka. Það er því ljóst að kvennalands- lið Íslands á dygga aðdáendur og stuðningsmenn í stelpunum á Símamótinu
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir