Köttur í útstillingaglugga - Cintamani Bankastræti

Köttur í útstillingaglugga - Cintamani Bankastræti

Kaupa Í körfu

Þessi litla kisa, sem verslunarfólkið kallar Mangó, kemur daglega í verslun Cintamani í Bankastræti og stillir sér upp úti í glugga til að horfa á mannlífið fyrir utan, við fögnuð vegfarenda og viðskiptavina. Kisan byrjaði að venja komur sínar þangað nýlega, m.a. til að horfa á fiskana í tjörninni sem er í kjallara verslunarinnar. Heyrst hefur að hún líti stundum inn í verslun Víðis og mæti í drekkutíma á Ölstofu Kormáks og Skjaldar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar