Drulllupollar

Kristján Kristjánsson

Drulllupollar

Kaupa Í körfu

VEGNA mikilla framkvæmda hefur miðbærinn á Akureyri verið víða illa útlítandi undanfarin misseri og þegar framkvæmdum er lokið á einum stað og búið að ganga frá götum og gangstéttum eru hafnar framkvæmdir á næsta stað. Ekki sér fyrir endann á öllu þessu, enda framundan að ráðast í breytingar á Ráðhústorgi, Skátagili og göngugötu, fyrir háar fjárhæðir. Framkvæmdum utan við nýbygginguna að Strandgötu 3 er loksins að mestu lokið en hins vegar eiga þeir vegfarendur sem leið eiga um lóð Landsbankans í miðbænum erfitt um vik. Á austanverðri lóð bankans hefur myndast myndarlegur drullupollur, sem er sérstaklega gangandi fólki til trafala og heftir auk þess aðgang að inngangi bankans þar. Hvort þetta ástand á eftir að vara lengi skal ósagt látið, þar sem ekki náðist í útibússtjóra Landsbankans í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar