Laugardalur

Laugardalur

Kaupa Í körfu

VINSÆLDIR Húsdýragarðsins hjá yngstu kynslóðinni eru miklar enda finnst börnum fátt meira gaman en að skoða dýrin og þá ekki síst þau dýr sem sjaldan sjást nærri byggð eins og hreindýrin. Þeir voru svolítið grallaralegir félagarnir tveir sem heimsóttu Húsdýragarðinn um daginn en greinilegt er á svip þeirra að þeim finnst nokkuð til hreindýrsins koma. Það er hins vegar ekki víst að þeir njóti sömu hylli hjá dýrinu, a.m.k. veitir það þeim ekki mikla athygli. (Fjölskyldugarðurinn í Laugardal)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar