Skrafl fyrir börn

Kristinn Magnúsosn

Skrafl fyrir börn

Kaupa Í körfu

Reynir Hjálmarsson Skrafl er orðaleikur sem hefur notið vinsælda á Íslandi sem og víða annars staðar í heiminum. Reynir Hjálmarsson, bókmenntafræðingur, þýð- andi og útgefandi í Garðabænum, er formaður Skraflfélags Íslands og fyrrverandi Íslandsmeistari í skrafli. Reynir er annar af höfundum og útgefendum Kröflu, íslensks skrafls, sem áður hefur komið út og er sniðið að íslensku máli, en enska útgáfan er ekki með rétt stafahlutföll miðað við íslenskuna, að sögn hans. Krafla hefur notið vinsælda hjá skröflurum hérlendis og er m.a. spilað á Íslandsmótum í skrafli. Nú hefur hann búið til skrafl sem krakkar geta líka spilað, Öskju. Hugmyndin kviknaði fyrir um ári þegar hann var beðinn um að kynna Kröflu í fimmta bekk grunnskóla, en hann hafnaði því þar sem spilið væri of erfitt fyrir nemendurna

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar