Leikskólinn Hagaborg í fjöruferð

Leikskólinn Hagaborg í fjöruferð

Kaupa Í körfu

„Í Gróttu er brimasöm klettafjara sem býður upp á fjölbreytilegt dýra-, fuglaog plöntulíf. Við erum svo heppin að vera að fara í þessa ferð á stórstraumsfjöru og þá er enn meiri fjölbreytileiki sem kemur í ljós,“ segir Hildur Magnúsdóttir, doktorsnemi við líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, en hún ætlar að leiða göngu um Gróttu nk. laugardag, 28. apríl. Hildur mun segja göngufólki frá lífverum sjávarins og fjörunnar. Gangan er í röðinni „Með fróðleik í fararnesti“ sem fór af stað 2011. Um er að ræða samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands og er áherslan á að uppfræða börn og ungmenni í þessum gönguferðum. Ferðafélag barnanna, sproti innan FÍ, sér um framkvæmd göngunnar með Háskóla Íslands. Í tilkynningu kemur fram að varptími sé í nánd og því síðustu forvöð að fara í Gróttu þetta vorið því svæðið er lokað fyrir mannaumferð frá 1. maí fram í miðjan júlí. Mæting er kl. 10:30 á bílastæðinu við Gróttu á Seltjarnarnesi. Hér er gullið tækifæri á góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar