Bruni perlan

ValgardurGislason

Bruni perlan

Kaupa Í körfu

Bruni perlan Eldur kom upp í einangrun á hitaveitutanki við inngang Perlunnar á þriðja tímanum í gær. Talið er að eldsupptök megi rekja til iðnaðarmanna sem voru að störfum við tankinn. Engin slys urðu á fólki og segir Birgir Finnsson, aðstoðarslökkviliðsstjóri á höfuðborgarsvæðinu, að vel hafi gengið að rýma Perluna. „Það var töluvert af fólki og strax farið í rýmingu. Það gekk allt vel og við fórum í að koma okkur að eldinum en það tók okkur töluverðan tíma því hann var ekki sjáanlegur. Við sáum bara reyk sem kemur héðan og þaðan en við fórum að reyna að brjóta og taka klæðninguna og komast að eldinum,“ segir Birgir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar