Magnús Már Haraldsson - Fimm eða færri Á Rió

Kristinn Magnúsosn

Magnús Már Haraldsson - Fimm eða færri Á Rió

Kaupa Í körfu

Það er komið að næsta áskoranda í Fimm eða færri og að þessu sinni er það Magnús Már Byron Haraldsson sem er einn eigenda og jafnframt matreiðslumaður á veitingastaðnum RIO REYKJAVIK sem var ný- lega opnaður við gömlu höfnina í Reykjavík. Á RIO er matseldin undir áhrifum frá Suður-Ameríku, einna helst Perú, Mexíkó og Brasilíu og leitast er við að nota sem mest ferskt, íslenskt hráefni í suðrænum og nýstárlegum búningi, matreitt á nýjan og spennandi hátt. „Þar sem sumarið er að byrja fannst mér við hæfi að koma með léttan og sumarlegan rétt sem kallast tostadas. Tostadas er í raun ekkert annað en ristuð tortilla með mismunandi hráefni skemmir ekki fyrir að rífa parmesan yfir í lokin. Grillaður kjúklingur með mangó Kjúklingur Tómatpestó Rucola Tortilla Mangó Ristuð eða grilluð tortilla smurð með tómatpestó, kjúklingnum, mangóinu og rucola stráð yfir. Humar og epli Steiktur humar Hvítlauksrjómaostur Græn epli Rucola Tortilla Ristuð tortilla smurð með hvítlauksrjómaosti, rucola sett ofan á, steiktum humrinum raðað ofan á og eplum stráð yfir, ágætt að dressa eplið í sí- trónusafa. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Allt í öllu Magnús Már Haraldsson, matreiðslumaður og einn eiganda RIO Reykjavík. ofan á. Tostadas dregur nafn sitt frá orðinu „toasted/ ristaðar“ og þess vegna er tortillan stökk. Þær voru fyrst gerðar til að forðast matarsóun þegar tortillurnar voru ekki nógu ferskar til að nota í taco. Þá var farið að rista þær eða grilla. Þessi réttur passar við öll tækifæri og er hægt að útfæra hann hvernig sem mann lystir, en hér koma mínar hugmyndir að tostada,“ segir Magnús.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar