Ölfusárbrú - Steypa - Malbikun

Ölfusárbrú - Steypa - Malbikun

Kaupa Í körfu

Hafist var handa við að steypa nýtt brúargólf í Ölfusárbrú í nótt. Brúargólfið var orðið mjög slitið og voru hjólför þar orðin 40-50 mm djúp. Dagleg umferð um Ölfusárbrú yfir sumartímann er sirka 17.000 bílar á sólarhring. Steypan í nýja brúargólfið er nokkra sólarhringa að harðna og áætlað er að hægt verði að hleypa umferð aftur á brúna þann 20. ágúst. Með hagstæðu veðri gæti viðgerðin þó tekið skemmri tíma en áætlað er.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar