Steinsteypan - Hafnarfjörður

Steinsteypan - Hafnarfjörður

Kaupa Í körfu

Öflug verktakafyrirtæki og fjárfestar hafa stofnað nýja steypustöð sem ætlað er að hrista upp í markaði þar sem BM Vallá og Steypustöðin hafa verið einráð síðustu árin. Nú í vikunni rann fyrsta steypan úr steypustöð nýstofnaðs fyrirtækis sem nefnist Steinsteypan. Þar er um að ræða fyrirtæki sem nokkrir verktakar í jarðvegsvinnu ásamt öðrum fjárfestum hafa stofnað til á sviði steypuframleiðslu. Í dag eru það tvö stórfyrirtæki sem skipta milli sín langstærstum hluta steypumarkaðarins sem telur um 450 til 500 þúsund rúmmetra framleiðslu á ári. Það eru fyrirtækin BM Vallá og Steypustöðin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar