Fossvogsskóli
Kaupa Í körfu
Fossvogsskóli Skólanum lokað að hluta vegna myglu og rakaskemmda „Við lítum á þetta mál mjög alvarlegum augum og teljum fulla ástæðu til þess að krefja Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur skýringa á þessari úttekt sinni,“ segir Marta Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og vísar í máli sínu til Fossvogsskóla í Reykjavík, en skólabyggingin er mjög illa farin eftir langvarandi lekavandamál og skort á nauðsynlegu viðhaldi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur gerði úttekt á skólanum 21. nóvember sl. og gaf honum heildareinkunn 4 af 5 mögulegum. Fékk skólinn því fáar athugasemdir í eftirlitsferðinni. Á sama tíma segja starfsmenn rakavandamál hafa verið sýnilegt. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og fulltrúi Miðflokks í umhverfis- og heilbrigðisráði óskuðu eftir „tafarlausum aukafundi“ í ráðinu, eigi síðar en 15. mars nk. „Óskað er eftir fundinum vegna þess að komið hafa í ljós heilsuspillandi rakaskemmdir í húsnæði grunnskóla Reykjavíkur. Þess er farið á leit að rætt verði um sífjölgandi tilfelli af þessu tagi og aðkomu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að úttektum á skólahúsnæði sem og um aðra verkferla sem til álita koma,“ segir í fundaróskinni. Í gærkvöld var boðað til fundar í ráðinu klukkan 12.30 næsta föstudag. khj@mbl.is
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir