Skákbörn laufásborg
Kaupa Í körfu
Börn á Laufásborg taka þátt í Evrópumeistaramótinu í skólaskák, sem hefst í Rúmeníu í lok maí. Skólinn átti fulltrúa á heimsmeistaramóti barna í Albaníu í fyrra og er fyrsti leikskóli heims til þess að fara á bæði mótin. Omar Salama, FIDE-skákkennari, kom skákkennslunni á Laufásborg á laggirnar 2008 og hefur séð um hana síðan. Hann segir að í byrjun hafi markmiðið verið að kynna taflmennina fyrir börnunum og kenna þeim mannganginn. Um val hafi verið að ræða rétt eins og til dæmis að leika sér með kubba eða fara út í garð. Árið 2017 hafi verið ákveðið að taka þátt í grunnskólamóti barna níu ára og yngri. „Markmiðið okkar hefur alltaf verið að leggja áherslu á gleði og hafa gaman,“ segir Omar. „Árangur barnanna kom á óvart, þau lentu í 14. sæti og í kjölfarið ákváðum við að taka þátt í flokki sjö ára og yngri í heimsmeistaramótinu í skólaskák.“
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir