Wow air

Wow air

Kaupa Í körfu

Starfsmenn WOW air voru niðurlútir að sjá þegar þeir mættu í höfuðstöðvar fyrirtækisins í Katrínartúni í gærmorgun. Þegar blaðamaður mætti í höfuðstöðvarnar rétt fyrir kl. 9 var búið að loka móttöku fyrirtækisins og starfsmannafundur var að hefjast. Starfsmenn mynduðu þar hring um Skúla Mogensen, eiganda WOW air, sem hélt stutta ræðu. Að ræðu lokinni heyrðist lófaklapp áður en starfsmenn fóru á flug um skrifstofurnar. Hluti starfsmanna virtist vera að pakka saman persónulegum munum í pappakassa en einhverjir virtust vera að vinna. Einhverjir settust niður með kaffi til að spjalla saman enda mikið búið að ganga á hjá fyrirtækinu síðustu vikurnar. Það mátti sjá nokkra starfsmenn hálf-klökka á göngum fyrirtækisins enda gríðarlega erfiður tími

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar