Íslenska kvennalandsliðið í Handbolta - Æfing

Íslenska kvennalandsliðið í Handbolta - Æfing

Kaupa Í körfu

Steinunn Björnsdóttir, Þórey Rósa Stefánsdóttir og Sigríður Hauksdóttir. „Fyrstu tíu mínúturnar í síðari hálfleik reyndust okkur þungar í skauti. Þá misstum við norska liðið talsvert fram úr okkur. En við náðum að vinna okkur út úr stöðunni og jafna metin, 23:23, þegar skammt var til leiksloka,“ sagði Axel Stefánsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, í samtali við Morgunblaðið í gær eftir að íslenska landsliðið tapaði með tveggja marka mun, 26:24, fyrir B-landsliði Noregs í vináttulandsleik í Nadderud Arena í nágrenni við Haslum í Noregi í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar