Undir Eyjafjöllum

Rax / Ragnar Axelsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Undir Eyjafjöllum

Kaupa Í körfu

Það hafa gefist mörg tækifæri í sumarblíðu síðustu daga til þess að sinna útivist og öðrum áhugamálum, líkt og þessi kajakræðari, sem undi sér vel í sjónum undir Eyjafjöllum á dögunum. Útlit er fyrir að veðrið verði áfram tiltölulega milt þó að ögn muni kólna, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er gert ráð fyrir norðvestlægri átt næstu daga með dálítilli rigningu eða súld á landinu norðan- og austanverðu. Sunnanmegin verður skýjað með köflum og skúrir syðst á landinu, einkum síðdegis. Gert er ráð fyrir að hitinn verði á bilinu 4 til 15 stig og verður hlýjast á Suðurlandi, en öllu svalara í veðri fyrir norðan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar