Leifur og skuggarnir

Haraldur Jónasson/Hari

Leifur og skuggarnir

Kaupa Í körfu

Hundar tveir viðraðir í síðdegissól undir Leifi hinum heppna Vegir liggja til allra átta, er gjarnan sagt. Í líkneski sínu horfir Leifur Eiríksson til vesturs rétt eins og á tímum landafunda. Maðurinn með hundinn tók hins vegar stefnuna til austurs og mót sólinni, en dagsbirtu hennar nýtur nú æ skemur. Ágætt veður verður sunnan- og vestanlands í dag, skýjað og hiti aðeins í plús eða nærri frostmarki. Norðanlands og austan léttskýjað en hitastig aðeins í mínus.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar