Nýjar dýnur

Þorkell Þorkelsson

Nýjar dýnur

Kaupa Í körfu

AUSTURBAKKI hf. hefur ákveðið að styrkja nokkrar barnadeildir sjúkrahúsa um þessi jól með því að gefa heilsudýnur fyrir börn frá Bay Jakobsen. Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hafa þegar verið afhentar fjórar dýnur. Árni Þór Árnason, framkvæmdarstjóri Austurbakka hf., afhenti Helgu Bragadóttur, hjúkrunarsviðsstjóra og Svönu Pálsdóttur hjúkrunardeildarstjóra á Barnaspítala Hringsins 5 dýnur 29. desember sl. Sjúkrahús Reykjavíkur fær á næstu dögum fjórar dýnur til notkunar á barnadeild sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar