Davíð Árni Guðmundsson

Davíð Árni Guðmundsson

Kaupa Í körfu

Átta ára drengur, Davíð Árni Guðmundsson, sem slasaðist á Patreksfirði þegar hann fékk púður úr flugeld í andlitið á nýársnótt, var útskrifaður af Landspítala - háskólasjúkrahúsi við Hringbraut í gær. Meiðsli hans reyndust mun minni en talið var í fyrstu og hann mun ekki bera varanlega áverka eftir óhappið. Hann hlaut þó sár á sjónhimnu vinstra auga. Hár hans sviðnaði og hann hlaut nokkur smásár á andliti.Davíð Árni Guðmundsson, var útskrifaður af Barnaspítala Hringsins í gær og urðu fagnaðarfundir er frændfólk hans í Reykjavík tók á móti honum. Hér er Davíð Árni, til hægri, ásamt frænda sínum, Degi Benedikt Reynissyni, 7 ára, á heimili hins síðarnefnda í gærkvöldi

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar