Spilakassar

Spilakassar

Kaupa Í körfu

VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri hvikar í engu frá þeirri afstöðu borgaryfirvalda, að fyrirhugaður rekstur spilasalar í verslunarmiðstöðinni í Mjódd sé óforsvaranlegur með öllu. Íbúar hafa mótmælt uppsetningu spilasalarins harðlega. Mun Vilhjálmur eiga fund á allra næstu dögum með forsvarsmönnum Háspennu ehf., sem annast rekstur spilasalanna skv. samningi við Happdrætti Háskóla Íslands, til að fá þá ofan af þessum áformum. MYNDATEXTI. Umdeild starfsemi. - Heimilt er að reka spilakassa með peningavinningum undir eftirliti m.a. í söluturnum, á veitingastöðum, í umferðarmiðstöðvum og í verslunum samkvæmt reglugerð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar