Friðrik Þór og Kristbjörg Kjeld

Friðrik Þór og Kristbjörg Kjeld

Kaupa Í körfu

Mamma Gógó fjallar um kvikmyndaleikstjóra sem þráir ekkert heitar en viðurkenningu og ást þjóðar sinnar. Af einhverjum ástæðum er gatan ekki eins greið og hann hugði og eitthvað eru fjármálin líka að flækjast fyrir honum. Til að bæta gráu ofan á svart veikist móðir hans af Alzheimer-sjúkdómnum og þarf að komast á þar til gerða stofnun. Það reynist þrautin þyngri, enda blessuð konan óvön að láta segja sér fyrir verkum. Myndin verður frumsýnd 30. desember næstkomandi. Kvikmyndaleikstjórinn er aldrei nefndur á nafn í myndinni en fram kemur að hann er Friðriksson. Hann á móður sem kölluð er Gógó og er að frumsýna Börn náttúrunnar. Beint liggur við að spyrja Friðrik Þór Friðriksson hvort hér sé um sjálfsævisögulegt verk að ræða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar