Söltunarsýning á Siglufirði

Söltunarsýning á Siglufirði

Kaupa Í körfu

Í rúm tuttugu ár hefur Síldarminjasafnið sett upp söltunarsýningar – hefð hefur verið fyrir því að salta á planinu við Róaldsbrakka alla laugardaga í júlí allt frá árinu 1994. Síldarstúlkur staðarins salta í tunnur, sýna gömul vinnubrögð og vekja upp gamla andann af síldarplönunum, meðal annars með söng, dansi og bryggjuballi við harmonikuspil. Sýningarnar hafa notið mikilla vinsælda meðal safngesta og ferðamanna. Undanfarin ár hafa verið settar upp um tuttugu og fimm sýningar á hverju sumri. Allflestar fyrir erlenda ferðamenn sem fá sérstaka innsýn í sögu síldarinnar er þeir fylgjast með síldarstúlkunum hausskera og slógdraga síldina – og leggja svo niður í tunnur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar