Ísland - Frakkland 18:24

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ísland - Frakkland 18:24

Kaupa Í körfu

HANN hófst ekki með neinum glæsibrag lokaundirbúningur íslenska landsliðsins í handknattleik fyrir HM í Frakklandi sem hefst eftir hálfan mánuð. Sex marka tap, 18:24, gegn Frökkum í fyrsta landsleik þjóðanna af þremur, sem fram fór á Ásvöllum bar þess glöggt merki að sjö mánuðir voru liðnir síðan Íslendingar léku síðast landsleik. MYNDATEXTI: Það var mislétt yfir leikmönnum íslenska landsliðsins þegar þeir fylgdust með fyrsta leiknum frá hliðarlínunni, f.v. Óskar Jón Helgason sjúkraþjálfari, Davíð Björn Sigurðsson liðsstjóri, Boris Abkashev aðstoðarþjálfari, Sebastían Alexandersson, Róbert Gunnarsson, Valgarð Thoroddsen, Heiðar Felixson, Julian Duranona, Gústaf Bjarnason, Guðfinnur Kristmannsson, Róbert Sighvatsson og Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar