Stjarnan - Grótta/KR 24:30

Þorkell Þorkelsson

Stjarnan - Grótta/KR 24:30

Kaupa Í körfu

Allt í molum hjá Stjörnunni STJARNAN úr Garðabæ er það lið sem valdið hefur mestum vongbrigðum á leiktíðinni. Liðið hefur að margra mati leikið langt undir getu og tap á heimavelli gegn nýliðum Gróttu/KR á laugardaginn, 24:30, er sönnun þess að ekki er allt með felldu í herbúðum Garðabæjarliðsins. Á meðan allt gengur á versta veg hjá Stjörnumönnum leikur allt í lyndi hjá leikmönnum Gróttu/KR og öfugt við Stjörnuna hafa nýliðarnir af Nesinu komið mest á óvart í vetur. MYNDATEXTI: Einar Baldvin Árnason, leikmaður Gróttu/KR, sækir hér að marki Stjörnunnar í Garðabæ.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar