Nýbygging við Listabraut

Kjartan Þorbjörnsson

Nýbygging við Listabraut

Kaupa Í körfu

Byggja nýtt háskólahús ÞÓTT vetur sé genginn í garð er unnið af krafti við 4000 fermetra, fimm hæða nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við Listabraut. Ráðgert er að taka bygginguna í notkun 1. september nk. og tvöfaldast þá kennslurými skólans. Nú eru þar um 650 nemendur og stunda nám í tölvunarfræðum og viðskiptafræðum. MBA-nám í rafrænum viðskiptum hefst á næstunni. Núverandi húsnæði skólans var ætlað fyrir 500 nemendur. MYNDATEXTI: Iðnaðar- og verkamenn vinna nú við viðbyggingu Háskólans í Reykjavík.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar