Merkur Íslenskur fáni afhentur á Bessastöðum
Kaupa Í körfu
Tók við fána fyrsta forsetans Forseti Íslands veitti þjóðfána Íslands viðtöku við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Fáni þessi er merkilegur fyrir það að hann ber eiginhandaráritun Sveins Björnssonar, fyrsta forseta Íslands. Nafn hans er ritað með smekklegum hætti í mjall- hvítan krossinn, undir efri stangarreit fánans, þeim heiðbláa. Er hann sagður annar tveggja sem til eru með áritun forsetans. Minjar og saga, vinafélag Þjóðminjasafnsins, afhenti forsetanum fánann en félagið leitaði til Eimskipafélags Íslands til þess að geta tryggt kaupin á fánanum, sem boðinn var upp um mitt síðasta ár í Kaupmannahöfn. Eimskipafé- lagið tók vel í þessa bón, en hún þótti afar vel við hæfi af þeirri ástæðu að Sveinn Björnsson gegndi stjórnarformennsku í Eimskipafélaginu, frá stofnun þess árið 1914 og allt til ársins 1920. Frá vinstri: Stefán Einar Stefánsson, formaður Minja og sögu, Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Sigríður Þorgeirsdóttir og Ágústa Kristófersdóttir, starfs- menn Þjóðminjasafnsins, halda á fánanum, Óskar Magnússon, stjórnarformaður Eimskipafélagsins, og Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri Eimskipafélagsins.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir