Frost í Biskupstungum

Frost í Biskupstungum

Kaupa Í körfu

Kuldinn hefur bitið í Biskups- tungum eins og annars staðar á landinu síðustu vikur. Í gær var þó kaldast á landinu í Víðidal í Reykjavík en þar mældist 10,9 stiga frost snemma morguns. Hiti verður á bilinu 0-5 stig í dag og norðaustanátt, 5-13 metrar á sekúndu og léttir til. Á morgun verður norðaustan og austan 5-13 m/s. Skýjað að mestu og sums staðar dálítil él en yfirleitt bjart sunnan heiða og frost 1 til 9 stig. Á föstudag er spáð 4-14 stiga frosti og austan og norðaustan 5-13 m/s, björtu með köflum en sums staðar lítilshátt- ar él. Um helgina verður norðlæg átt og áfram kalt í veðri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar