Leikskólinn Gullborg - Bílabúð Benna

Jim Smart

Leikskólinn Gullborg - Bílabúð Benna

Kaupa Í körfu

Daewoo handmálaður HÓPUR barna á leikskólanum Gullborg fékk að spreyta sig á verkefni sem fæst önnur börn hafa upplifað en mörg ef til vill dreymt um. Verkefnið fólst í því að handmála nýja bifreið af Daewoo-gerð. Þetta var handmálun í bókstaflegum skilningi þess orðs því áhöldin voru engin önnur en litlar hendur og fingur. Börnin sýndu listræna tilburði við verkið og leikskólakennarar á Gullborg höfðu yfirumsjón með sköpunarferlinu. Tiltækið var skipulagt af Bílabúð Benna sem rekur einu bílaverslunina í Kringlunni. Að verkinu loknu var listamönnunum haldin veisla í boði Stjörnutorgs í Kringlunni. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar