Barnamenningarhátíð 2023 í Hörpu

Barnamenningarhátíð 2023 í Hörpu

Kaupa Í körfu

Barnamenningarhátíð verður haldin hátíðleg víða um land á næstu dögum. Það var kátt á hjalla í Hörpu í gærmorgun þegar Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti hátíðina í Reykjavíkur- borg. Mörg hundruð börn voru þar saman komin til að fylgjast með en gestum var m.a. skemmt með trommuleik, sirkuslistum, leikþætti og tónlist sem var sér- samin í tilefni hátíðarinnar. Lag hátíðarinnar heitir Kæri heimur og er samið af Vigdísi Hafliðadóttur og Ragnhildi Veigarsdóttur úr hljómsveitinni Flott. Viðburðir vegna hátíðarinnar fara fram á höfuðborgarsvæðinu og Akur- eyri. Stendur áhugasömum meðal annars til boða að sækja listasýningar, sirkussýningar, bókaupplestur, ratleiki og sund- laugardiskó.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar