Maður í bak og fyrir í átakaleik

Óttar Geirsson

Maður í bak og fyrir í átakaleik

Kaupa Í körfu

Hart var tekist á í vináttuleik Rugbyfélags Reykjavíkur og sjóliða af breska herskipinu HMS Norrhumberland, sem leikinn var í Skessunni, inn- anhúsvelli Fimleikafélags Hafnarfjarðar í gær. Er þetta ekki í fyrsta sinn sem félagið býður áhöfnum herskipa upp í dans. Hefur það áður leikið gegn sjóliðum frá Kanada, Frakklandi og Bretlandi er skip á þeirra vegum lágu við landfestar. Birnir Orri Pétursson, forseti Rugbyfélagsins, segir að leikar hafi farið 21:14 fyrir Bretana eftir æsispennandi lokamínútur. Aðspurður segir hann nokkra hafa lent í smávægilegu hnjaski í báðum liðum en þó ekkert alvarlegt og allir hafi þeir svo farið saman í gleðskap eftir leik til að fara yfir málin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar