Glaðir ferðamenn í miðbænum

Glaðir ferðamenn í miðbænum

Kaupa Í körfu

Ísland er vinsæll ferðamannastaður og nú á fallegum vordögum flykkist fólk víða að úr veröldinni hingað til að njóta og upplifa. Til siðs er meðal útlendinganna að taka myndir af því sem fyrir augu ber, sem eðlilega er ótalmargt. Sumt er raunar mjög kátlegt, samanber þessa mynd sem tekin var í Bankastræti í Reykjavík. Líklegt er þó að eitthvað verði þyngri brúnin á þjóðarleiðtogum Evrópu sem nú eru væntanlegir til Íslands til skrafs og ráðagerða á fundi Evrópuráðsins, sem hefst á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar