Hjólreiðafólk við Hörpu torg

Hjólreiðafólk við Hörpu torg

Kaupa Í körfu

Fjöldi fólks safnaðist saman og hjólaði til að vekja athygli á skorti á umferðaröryggi hjólafólks hérlendis Stór hópur hjólafólks tók í gær- kvöldi þátt í viðburðinum Keðju- hvörf til vitundarvakningar um óviðunandi ástand í umferðarör- yggismálum hjólandi umferðar. Fólkið hjólaði rólega um miðborg Reykjavíkur en hringdi jafnframt bjöllum og þeytti lúðra til að vekja athygli annarra vegfarenda á því að taka þurfi tillit til hjól- reiðafólks í umferðinni. Finnst mörgum það skjóta skökku við að umferðaröryggi hjólafólks sé ábótavant þegar yf- irvöld hafa það yfirlýsta markmið að landið verði kolefnislaust árið 2040. Því markmiði verði ekki náð nema með breyttum ferða- venjum og hvetja þurfi til hjól- reiða með bættu umferðaröryggi, en dæmi séu um að umferðarslys hjólafólks hafi ekki fengið verð- skuldaða athygli frá lögreglu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar