Meingunar myndir á stórhöfuðborgarsvæðinu

Meingunar myndir á stórhöfuðborgarsvæðinu

Kaupa Í körfu

Gosmóðan lagðist yfir höfuðborgina Gosmóða lá yfir Reykjavík í gær og voru loftgæði verri en undanfarna daga eins og sjá má á þessari mynd sem sýnir vel þokukennt loftið yfir Landspítalanum í Fossvogi. Lítt grillti í Esjuna sem og önnur fjöll í nágrenni höfuðborgar- svæðisins. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hvatti viðkvæma til að halda sig innandyra, ellegar forðast áreynslu utan- húss. Mælt var gegn því að ungbörn væru látin sofa úti í vagni. Fólki með öndunarfærasjúkdóma var ráðlagt að vera með aukaskammta af lyfjum við hendina

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar