Breiðablik - Struga - Sambandsdeild Evrópu

Breiðablik - Struga - Sambandsdeild Evrópu

Kaupa Í körfu

Breiðablik skrifaði nýjan kafla í knattspyrnusöguna. Breiðablik tryggði sér í gær sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í knattspyrnu, fyrst íslenskra karlaliða, þegar liðið hafði betur gegn Struga frá Norður- Makedóníu í síðari leik liðanna á Kópavogsvelli. Viktor Karl Einarsson skoraði sigurmark leiksins strax á 3. mínútu í 1:0-sigri Blika en Breiðablik vann fyrri leikinn í Norður-Makedóníu 1:0 og einvígið því samanlagt 2:0. Dreg- ið verður í riðla í Sambandsdeildinni í Mónakó í hádeginu í dag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar