Framkvæmdir við Austurver

Eyþór Árnason

Framkvæmdir við Austurver

Kaupa Í körfu

Erfiðara aðgengi að Læknavaktinni vegna framkvæmda Miklar framkvæmdir standa yfir við Austurver við Háaleitisbraut í Reykjavík. Þeirra vegna eru bílastæðin við verslunarkjarnann mörg tímabundið ónothæf, þar á meðal bílastæði fatlaðra. Til að komast inn í húsið meðan á fram- kvæmdum stendur þarf að ganga yfir mjóa viðarbrú en Læknavakt- in er á annarri hæð hússins. Kjartan Örn Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Lyfja og heilsu, sér um rekstur Austurvers meðal annarra. Segir hann við Morgunblaðið að verið sé að taka gangstéttina í gegn þar sem hún hafi verið orðin ónýt. Jafnframt sé verið að koma hiturum fyrir undir stéttinni, laga rampinn upp á gangstéttina og breikka bílastæði fatlaðra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar