Icelandair innanlands Vestmannaeyjaflug

Icelandair innanlands Vestmannaeyjaflug

Kaupa Í körfu

Fjölmennt var á Reykjavíkurflugvelli í gær eins og búast má við á föstudegi fyrir verslun- armannahelgina. Andrúmsloftið í flugstöð- inni var reyndar nokkuð frábrugðið því sem flugfarþegar hafa alla jafna fengið að kynnast. Hljómsveit tróð upp í einu horni stöðvarinn- ar og bauð upp á lifandi tónlist fyrir gesti og starfsfólk. Fyrir utan flugstöðina voru auk þess grillaðar pylsur, matseld sem Íslendingar þekkja vel á góðum sumardögum. Mikill fjöldi mun ferðast með innanlandsfluginu um versl- unarmannahelgina, ekki síst til Vestmanna- eyja þar sem Þjóðhátíðin trekkir. Spennan var farin að magnast þegar ljósmyndara blaðsins bar að garði í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar