Tónlistarmiðstöð íslands

Tónlistarmiðstöð íslands

Kaupa Í körfu

Stofnfundur í Hörpu Tónlistarmiðstöð hefur verið stofnuð til að verða einn af hornsteinum íslensks tónlist- arlífs. Á árunum 2023-2025 er ráðgert að 600 milljónir renni af fjárlögum til hennar og til að efla sjóði til viðbótar við þau framlög sem renna nú þegar til tónlistar. Stofnfund- ur miðstöðvarinnar fór fram í Hörpu í gær. „Það er ákveðinn draumur að rætast,“ segir Lilja D. Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Stofnaðilar Tónlistarmið- stöðvar eru STEF, Félag hljómplötuframleiðenda, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Tónskálda- félag Íslands auk ráðherrans fyrir hönd ríkissjóðs. Tónlistarmiðstöðinni er ætlað að sinna fræðslu og stuðningi við tónlistarfólk og tónlist- artengd fyrirtæki, styðja við uppbyggingu tónlistariðnaðar- ins og kynna íslenska tónlist og tónlistarfólk erlendis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar