Nautatungur reyktar í Aðaldal

Atli Vigfússon

Nautatungur reyktar í Aðaldal

Kaupa Í körfu

Benedikt Kristjánsson bóndi á Hólmavaði í Aðaldal með nautatungur, sem eru lostæti í jólahlaðborðin Laxamýri – Aðventan er ekki langt undan og þá verður ýmislegt gott á borðum landsmanna ef að líkum lætur. Það hefur verið góð- ur ilmur frá reykhúsum bænda undanfarið enda margt matar- legt sem þar hangir uppi í rjáfri. Benedikt Kristjánsson, bóndi á Hólmavaði í Aðaldal, sem hér er til hliðar á mynd, er einn þeirra bænda sem kunna vel til verka. Reykmetið frá honum fær alltaf góða dóma enda vinsælt hjá vin- um og vandamönnum að fá hann til þess að reykja fyrir sig. Um helgina var nóg að gera í reykhúsinu og hér er Benedikt með nautatungur sem hann var að taka niður úr reyknum. Hver tunga er um 1,5 kg að þyngd og því er hér um mikinn mat að ræða sem margir kunna vel að meta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar