Gestkvæmt hjá forsetahjónunum

Ottar Geirsson

Gestkvæmt hjá forsetahjónunum

Kaupa Í körfu

Forseti lýðveldisins, Guðni Th. Jóhannesson, tók ásamt Elizu Reid forsetafrú á móti nýjum íslenskum ríkisborgurum á Bessastöðum í gær og tilkynnti embætti forseta eftirfarandi í fréttatilkynningu: „Það að fá nýjan ríkisborgara- rétt er stór áfangi í lífi margra og skiptir miklu máli að fólk sem þannig gengur til liðs við íslenskt samfélag finni að það er hjartanlega velkomið.“ Með boðinu í gær er brotið blað í sögu forsetaembættisins en þetta var í fyrsta sinn sem forseti lýðveldisins býður nýjum ríkisborgurum landsins til emb- ættisbústaðarins á Álftanesi. Kemur hugmyndin frá forseta- hjónunum sjálfum en ámóta gestrisni mun tíðkuð í Kanada, heimalandi forsetafrúarinnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar