Eldgosinu lokið

Hörður Kristleifsson

Eldgosinu lokið

Kaupa Í körfu

Eldgosinu lokið en næstu eldsumbrot yfirvofandi Veðurstofa Íslands lýsti yfir lokum eldgossins við Sund- hnúkagígaröðina í gærmorgun. Eldgosið braust út 16. mars og stóð yfir í 54 daga. Gosórói hafði farið minnkandi á mið- vikudag og voru engar hraunslettur sjáanlegar í fyrrinótt. Myndin hér að ofan var tekin í gær og sést reykur stíga upp úr gígnum en hvergi er að sjá glóandi hraun. Kvikusöfnun heldur þó áfram undir Svartsengi og þykir líklegt að næstu eldsumbrot séu ekki langt undan. Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir næstu lotu yfirvofandi. Mikil óvissa ríki þó og telur hann ómögulegt að spá fyrir um framhaldið. „Það eru engin gögn sem hægt er að byggja á,“ segir hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar