Franskar í hádeginu

Rax /Ragnar Axelsson

Franskar í hádeginu

Kaupa Í körfu

Hann hefur líklega verið svangur, skógarþrösturinn sem tyllti sér á rúðuþurrkuna á bíl Ragnars Axelssonar ljósmyndara þar sem hann sat og gæddi sér á frönskum kartöflum í hádeginu í gær. Ragnar bauð gestinum þegar í mat og var boðinu tekið fagnandi. Hafði fuglinn góða lyst á skyndibitafæðinu og hámaði það í sig úr annarri hendi ljósmyndarans, sem nýtti hina til að munda myndavélina og smella af.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar