Húsavíkurfjall

Hafþór Hreiðarsson

Húsavíkurfjall

Kaupa Í körfu

Húsavík - Norðurland - Húsavíkurfjall Fremur snjólétt er miðað við árstíma í Húsavíkurfjalli enda hafa hlýir vindar úr suðri leikið um landsmenn að undanförnu. Á Norðurlandi eystra hefur mælst allt að 14 stiga hiti í vikunni en sunnanlands er ögn kaldara, en þó talsverð hlýindi. Snjó hefur leyst víðs vegar um landið og þegar færð er skoðuð á landinu er hringvegurinn að mestu greiðfær að undanskildum Austfjörðunum og suðaustur- horninu þar sem hálka og hálku- blettir eru á vegum. Áfram má búast við hlýindum á landinu öllu í dag en um helgina fer veður kólnandi. Á sunnudag gæti aftur fryst á láglendi og eftir helgi er útlit fyrir að frost verði um allt land.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar