Hringferðin - Fljótshlíð

mbl.is/Brynjólfur Löve

Hringferðin - Fljótshlíð

Kaupa Í körfu

Í sjö ár, sjö mánuði og sjö daga sátu þær við og saumuðu Njálssögu í 90 metra langan hördúk. Nú bíður þetta magnaða listaverk, sem sækir innblástur í miðaldalistir, þess að verða sett upp í nýjum húsakynnum á Hvolsvelli. Þær Gunnhildur Edda Kristjánsdóttir og Kristín Ragnar Gunnarsdóttir leiða áheyrendur í allan sannleikann um Njálurefilinn svokallaða. Helga Sigurðardóttir á Torfastöðum hefur lagt mikið til verksins allt frá fyrsta degi og situr nú við og tekur síðustu sporin í ferðarefilinn. Nákvæmnisverk og einstakt með hinum forna refilsaumi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar