Bitið í harðfiskinn - Þorrablót Stjörnunnar

Bitið í harðfiskinn - Þorrablót Stjörnunnar

Kaupa Í körfu

Garðbæingar komu saman og blótuðu þorra í íþróttahúsinu Mýrinni á bóndadag í gær, en Stjarnan sér um að skipuleggja samkomuna. Mjög er sóst eftir því að komast á þorrablót í Garðabæ eins og í fleiri sveitarfélögum en snemma í mánuðinum var tilkynnt að uppselt væri á blótið. Þegar ljósmyndari blaðsins leit við voru gestirnir venju samkvæmt að skammta sér þjóðlegar kræsingar á diskana.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar