Líf og fjör á Arnarhóli

Eggert Johannesson

Líf og fjör á Arnarhóli

Kaupa Í körfu

Á þessum tíma árs má sjá víða um miðborgina ungmenni gera sér glaðan dag í skemmtilegum búningum. Venjan er að sletta úr klaufunum í lok próftíðar og áður en útskriftir taka við. Þessir hressu jólasveinar voru á vappi við Arnarhól síðdegis í gær og nutu blíðviðrisins undir vökulu auga Ingólfs Arnarsonar sem nam landið. Hæglætisveður verður áfram í dag en um helgina er spáð rigningu víðast hvar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar