US Navy

Kristján H. Johannessen

US Navy

Kaupa Í körfu

Bandarísku hafrannsóknaskipin USNS Marie Tharp (t.v.) og USNS Pathfinder lágu í gær við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn. Skipin eru á vegum sjóhersins og sérstaklega búin tækjum til að rannsaka, mynda og kortleggja hafsbotninn með afar ná kvæmum hætti. Gögnin eru svo meðal annars nýtt af kafbátum Bandaríkjahers. Pathfinder komst í heimsfréttirnar í febrúar 2023 þegar kínverskur njósnabelgur var skotinn niður við strendur Banda ríkjanna eftir að hafa svifið óboðinn inn í lofthelgi landsins. Var Pathfinder þá í hópi þeirra herskipa sem send voru til að tryggja hafsvæðið sem belgurinn og tæknibúnaður hans féllu í og endurheimta brakið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar